Já ólympíuleikar nálgast, þá er nú ekki úr vegi að æfa sig aðeins í kínverskunni.
Hér er svona 5 mínútna crash course í kínversku. Og mæli ég með því að þetta sé lesið upphátt.
Enska Kínverska
That’s not right! Sum Ting Wong
Are you harbouring a fugitive? Hu Yu Hai Ding
See me ASAP Kum Hia Nao
Stupid Man Dum Fuk
Small Horse Tai Ni Po Ni
Did you go to the beach? Wai Yu So Tan
I bumped into a coffee table! Ai Bang Mai Fu Kin Ni
I think you need a face lift! Chin Tu Fat
It’s very dark in here! Wai So Dim
I thought you were on a diet! Wai Yu Mun Ching
This is a tow away zone! No Pah King
Our meeting is scheduled for next week! Wai Yu Kum Nao
Staying out of sight Lei Ying Lo
He’s cleaning his automobile Wa Shing Ka
Your body odour is offensive Yu Stin Ki Pu
Great Fa Kin Su Pa
Með kveðju Don Tidz
Hraðamælingar eru vissulega hættulegt sport!

Þangað til næst…. Adjö
Já komið er að því að hripa eitthvað smotterí hér inn, svona fyrst maður er með þetta. Engin ástæða til að halda úti aukasíðu undir skriferí ef að ekkert er á hana skrifað.
Mikið gerst síðustu daga. Þar má einna helst nefna flutningana sem fóru fram í kyrrþey, eða svo gott sem. Allavega þá var bílstjóra og kerru sárt saknað. Þeas meldu sig til 2 bílstjórar með sitthvora kerruna, mætti svo bara annar þeirra. Þrátt fyrir að vera með drengina sína. Skildi svo eftir kerruna þegar hann þurfti að fara. Hvernig stóð á því að kerran “allt í einu” var orðin sturtukerra, veit ég ekki. Málið er í rannsókn. Gekk þetta því mun hægar en planlagt var. Vil ég þakka öllum sem að löggðu hönd á plóginn. Sérstaklega vil ég þakka Vigni sem mætti eins og sönnum félaga sæmir fyrr en planlagt var, og rúffaði mesta smádraslinu saman með mér niður í íbúð. Makalaust hvað kemst fyrir í litlu Toyotunni hans. Komst ekkert að ráði fyrir í mínum, enda bara hanskahólf á stærð við hliðina á Toyoutunni hans. Mætti þó eitthvað af fólki þegar líða tók á daginn og var þetta þá klárað að mestu leyti. Erna Og Ásdís eru greinilega spíttfíklar báðar 2, því ekki var mikið slappað af hjá þeim á meðan þær voru þarna.
En eins og sagt var er ég fluttur. Úr 65fm í 103fm, sem verður að teljast til töluverðrar stækkunar. Frá því að hafa ekkert skápapláss í að hafa eitt það mesta skápapláss sem maður hefði getað ýmindað sér. Úr því að hafa lítið baðherbergi með setubaðkari, á stærð við símaklefa til að hafa 2 baðherbergi með sturtu á öðrum stað og sturtu og baðkari í “ekta” stærð á hinu. Er ég einnig með 2 verandir. Þeas eina sem er hægt að nota þegar maður vill grilla og aðra sem er bakvið, og er ansi smá.
Ekki er þó allt farið af kollegie-inu ennþá því eitthvað á ég nú af drasli þarna í kjallaranum, fékk ég línu vinkonu til að mæta klukkan eitthvað rugl í fyrramálið og taka þetta með mér á kerruna sína. Arriseraði því að vinkona bifvélavirkja míns sem að rekur genbrugs dæmi eitthvað, kemur og hirðir það sem ekki á að fara í rusl.
Og vil ég taka fram að auðvitað eru allir áfram velkomnir. Þó svo maður hafi fært sig nokkra metra.
Svo um helgina var farið til Cph. í afmæli Snorra ásamt Jens félaga. Það var rennt inn í cph um 5 leytið og komið sér fyrir heima hjá Snorra. Eftir það fórum við út að fá okkur í gogginn. Fórum við á frábært kaffihús sem er í nágrenni við heimili snorra og fengum okkur dýrindis borgara, svona áður en við fórum að skella í okkur einhverjum veigum. Lögðum við svo að stað í áttina að pöbbnum sem að Snorri og félagi hans höfðu bookað undir gjörninginn. Það er skemmst frá því að segja að við fórum eftir leiðbeningum snorra og ég var ekki alveg að fatta hvernig í þessu lá. Þannig að hringt var í karl föður minn sem að átti nú heima þarna í nokkur ár. “Já einmitt þið eruð alveg á réttri leið” hljómaði hinumeginn á línunni. En neeeiii löbbuðum við í þveröfuga átt i allavega 20min. TAKK PABBI. En á pöbbinn komumst við á endanum. En eins og óheppnum manni sæmir. Þá var barinn sem að Snorri valdi í Cph auðvitað double booked þetta kvöld, þannig að það var aðeins crowded þarna þegar leið á kvöldið. Sá maður þarna margan frægan einstaklinginn, þar á meðal Hannibal og Hrafnhildi, Ingvar og Vígdísi. Mick Øgendahl og fl og fl. Þar á eftir var skellt sér á færeyska staðinn Skarfinn. þar sem að við hittum færeyska próteinbúntið Högna Hammer og konu hans Ann. Alltaf gaman að hitta þetta fólk. Heimleiðin er dálítið götótt, en enduðum heima hjá Snorra þarna einhvertíma um morguninn, þrælhressir allir.
Skemmtileg ferð í alla staði. Þrátt fyrir margar merkilegar skyndiákvarðanir og fl komumst við Jens nú heilir og höldnu aftur til Horsens.
Er einstaklega lukkulegur með þetta allt saman.
Ætla nú að láta þessu röfli lokið í bili.
Þangað til næst.
Kv Barbapabbi.
Já lömbin mín, flutningar eru á næsta leyti. Aðeins 11 dagar í að skipt verði um adressu. Er þetta þó ekki langur flutningur, aðeins 1km c.a. Hlakkar mig mikið til að skipta um húsnæði, komast úr rakanum og fúkkanum hér á kollegie-inu og í eitthvað almennilegt. Þó er þetta mjög góður staður fyrir þá sem að eru í skólanum, þar sem að það er ekki nema rétt rúmir 80m út í skóla. Búið að bralla mikið hér á þessum stað. Og búið að kynnast mikið af góðu fólki, bæði fólki sem að býr hér og fráfluttu fólki. Þið vitið öll hver þið eruð, allt of langt mál að fara að útlista það hér.
Flutningar hefjast þann 14 apríl kl 14:00 og vara vonandi ekki lengur en 1 klukkutíma. því ekki er strákurinn með mikið af drasli. verður c.a. 1 kassi á mann, miðað við fólkið sem að er búið að bjóða sig fram. Eitthvað er af stærri mubleríi en samt ekkert sem tekur tíma, þar sem að ég flyt frá 1stu hæð og niður á jarðhæð, á hinum staðnum.
Annars er ekki margt sem á daga mína hefur drifið síðan síðast. Aðallega vinna og sofa bara. Ætla ég mér þó á leikinn á laugardaginn þar sem Horsens - Brøndby spila, hér á nýja leikvanginum. Væri gaman að smala nokkrum saman til að koma með á leikinn. Þeir sem hafa áhuga endilega að hafa samband, þá getum við farið saman í einni kös bara og fengið okkur einhverjar veigar fyrir meðan og efir leik.
Með kærri kveðju af tindinum
Don Tidz.
þá er ekki úr vegi að prufa þetta næsta skipt þegar þú þarft að fara á almenningsklósett!!!!
1. Settu hendina undir millivegginn og biddu “nágrannan” að lána þér meiri pappír.
2. Segðu hátt: “jakk, ég vissi að ég hefði ekki átt að sleikja þetta”
3. Klappaðu og hrópaðu húrrahrópum í hvert skipti sem einhver mígur, rekur við eða eitthvað annað ?
4. Segðu hátt “hmmmm, ég hef nú ekki séð þennan lit áður”
5. Segðu hátt “ahhhh!!!!! djöll er vatnið kalt”
6. Reyndu að stynja og orga eins lengi og þú getur, láttu svo nokkrar kartöflur detta ofan í skálina og andvarpaðu svo djúpt!
7. Segðu hátt “neeihhh,, hvernig komst þetta þangað !??”
8. Segðu hátt “pizza….. Minnir mig á pizzu…. með pepperoni”
9. Fylltu 2.l kókflösku og sprautaðu svo undir veggina yfir í hina básana og öskraðu “rólegur litli minn!!! rólegur !!!!”
10. Segðu hátt “merkilegt! það eru fleiri sem fljóta heldur sem sökkva”
11. Segðu hátt “æææ, kommon herra.stubbur, ekki sofna núna !”
12. Spilaðu eitthvað vel þekkt lag á rasskinnarnar
13. Hentu brjósthaldara á gólfið (svo allir sjái hann) og syngdu svo ástöfum “ég er frjáls” lagið…
Helló
Er hér í flughöfn óttans að bíða eftir rellu til að frakta strákinn til íslands. Alltaf sama sagan hér, bara sjötíuogáttaþúsundeitthundraðogellefu manns á undan mér í security check, sem að er svosem í lagi ef að sama liðið væri ekki líka á undan á barinn!!! Alveg hreint svakalegt að þurfa að bíða eftir að komast að til að geta keypt sér smáááááá refreshment. Undarlegt nok, þá fékk ég nú minn öl án mikilla vandræða. Þó að mér finnist öl ekkert góður, þá er eitthvað sem að segir manni að þetta sé málið þegar maður er að fara eitthvað með þessum rellum, kanski af því að heilinn er ekki viss um hvort að þetta sé eins og síðasti vökvi sem að maður innbyrði á æfinni, skil það sem voðalega vel. Kroppurinn er að setja sig í gúmmístellingar, þeas að maður geti setið í plássi sem er gert fyrir garðálf. Með lappir upp að eyrum og hnéskéljar í skralli. Það er vonandi að það verði meðvindur, þannig að þjáningin vari skemur. Er viss um að allir sem eru háðir einhverjum sljóvgandi og verkjastilandi lyfjum eru það bara af því að þeir fljúga reglulega með þessu rellurusli.
En hvað um það 9 dagar á fróni, er kanski ekki eitthvað sem að var planað, en það er alveg ágætt að koma á frónið inn á milli. Bara til þess að hitta eldra ljósritið og restina af góða fólkinu i mínu lífi.
Er búinn að mæla mér mót við það fólk sem er efst á lista hjá mér. Og btw hefur alltaf verið, verst er þó að sumir eru að fara erlendis sömu helgi og ég ætlaði mér að heimsækja. Maður getur víst ekki fengið allt sem að maður vill. Gengur bara betur næst. Svo er auðvitað fólk sem að er ómissandi í mínu lífi sem að veit ekkert að ég er á leiðinni, og ætla ég mér að banka uppá þar á laugardagskv. Á sá einstaklingur afmæli, veit þó ekki hvort að hann haldi neitt spes uppá það. En sá hinn sami verður þó neyddur í nokkur prómill. Ehhh ekki eins og ég hafi þurft að neyða prómillin þar niður, en allur er varinn góður. Tek með mér einhvern sem móralskan support og sem getur klappað og húrrað prómillin niður.
Já ágætt er það nú að sitja hér á Kastruppinu og góna á allt þetta magn af ónotuðum og notuðum LG sem að vafra hér um óáreittar.
Svo vil ég auðvitað minna á hina alþjóðlegu flutningsdaga 14-15apríl Þar eru öll góðmenni illmenni fúlmenni og ómenni velkomin, þeas ef að þau geta borið eitthvað. Fyrir þá sem ekki segjast geta borið neitt, það er lýgi. Þið eruð öll með hendur. Allavega síðast þegar ég sá til. No hands No cookie. Eins og einhver sagði um árið.
Með kveðju
Dr Icy
Aldeilis breytingar í gangi hjá mér. Hættur að reykja, dagur 14 orðinn að veruleika. Vaktabreytingar og
flutningar.
Ekki var nú eins erfitt að standa í þessu reykdæmi og maður hefði haldið. Keypti nikotínplástur, stig.1 og
ætlaði aldeilis að plástra mig í bak og fyrir, reiðubúinn að trappa mig niður. Notaði plásturinn aðeins í viku,
svona meðan ég var að komast yfir þetta versta, restin var í hausnum. Og vitandi það að það var nánast tómt þar
inni, var alveg eins gott að fá það síðasta burt og tæma hausinn alveg. Þannig að núna er pláss fyrir eitthvað
annað gjörsamlega useless þarna uppi.
Í næstu viku byrja ég á kvöldvöktum. Vinn þá frá 3 á daginn til 12 á kvöldin, mjöög spennó. Hef unnið mest af
tímanum mínum hér í dk, á kvöldvöktum og kann best við þær. Þá getur maður græjað það sem að þarf að græja á
daginn. Ekki að taka sér frí í vinnu þó að maður þurfi eitthvað að skjótast, maður bara græjar það fyrir hádegi
eða á leið í vinnuna. Er orðinn ansi þreyttur á því að þurfa að taka mér frí til að fara til tansa, í banka.
Alltaf að taka sér frí í 1-2 tíma í eitthvað. En það er frá og með mánudeginum history.
Greinilega dálítið utanvið mig í dag. Ætlaði að bíta í mandarínubát, og stakk upp í mig strokleðri. Sem betur
fer er dagurinn á enda hjá mer. Er á leið heim um leið og ég er búinn að pára þetta blogg.
Dagarnir verða alltaf betri og betri. Ég og stelpan erum orðin ansi slyng í allskyns leikjum á netinu. Fundum
út að við erum alveg geggjaðir bændur, allavega “virtual”. Annars birtist Óli snillingur í fyrradag með gjöf
handa stelpunni. Hafði hann keypt Barbie hesta eitthvað eitthvað. Stelpan er alveg að tapa sér í þessu spili.
Henni langar þó mest í Singstar, ætla ég að gera mitt besta til að hún geti nú spreytt sig á því. Þessir
mikrófónar kosta frekar mikið, í ljósi þess að þetta er eitt það almesta rusl sem að til er. En leitin er hafin
af mikrofonasetti handa dömunni, ætli ég reddi henni ekki Highschool musical með því, þá ætti brosið á henni að
endast sumarið.
Annars er ég á leið heim 7-14 mars, ætla að reyna að hafa það næs í nokkra daga og hlaða batteríin. Þeir sem að
vilja heilsa uppá gaurinn, er bent á að, ég verð bíllaus, að öllum líkindum upp á heiðar snilling kominn,
þannig að það verða engar heimsóknir á hjara veraldar eða lengra. Ég flýg til landsins, þá getið þið hin
andskotast til að lyfta á ykkur bossanum og færa ykkur nokkra metra í áttina að mér.
En hvað sem að því líður þá er þetta nú í styttra lagi í dag. Hef ekki meira að segja í bili, en ég mun að
sjálfsögðu snúa aftur.
Kv Hönnuðurinn
Vildi nota tækifærið og óska öllum gleðilegrar hátíðar.
Fyrir þá sem ég hef gleymt að óska til hamingju með eitthvað!!!
Kveðja úr athvarfinu…Tiddi
Hérna er uppskriftin af því hvernig á að gera konu hamingjusama, verð þó að viðurkenna að einhverstaðar hlýt ég að hafa farið út af þessum lista….
En hér kemur hann







Einfaldleiki er bestur!!!!
Kv úr kotinu
Darth Gadget
Jæja góðan daginn góðir hálsar og önnur líffæri. Hvernig er soundið þarna úti? Allir í góðum gír?
Héðan er voða voða lítð að frétta. Sama sagan alla daga, vinna vinna vinna. Maður þyrfti sjálfsagt að vera 5
ára til að sleppa við vinnu, allavega finst mér allir vera að vinna alltaf stöðugt í einhverju brasi.
Nú fer að líða að flutningi, er kominn í efsta sæti 2 biðlistum. Ætlaði að vonast til að fá íbúð fyrir jól, en
það gekk nú ekki upp, er að vonast til þess að það verði fyrir 1 feb allavega. það væri alveg meiriháttar. Svo
kanski bara spurning um að skella sér í húsakaup, þar sem útborgunin er ekkert til að fá hóstakast yfir, þá
ætti það að ganga. Það eru frekar mörg hús sem eru á ágætis verði hérna, þeas maður þarf ekki að vera
Rockefeller til að eignast þau.
Maður verður víst að fara að blogga meira hér inni, ekkert bloggað í langan tíma. Það var einhver ritstífla í
garunum.
Ekkert merkilegt hefur gerst svosem. Allar jólagjafir komnar í hús og bara beðið eftir því að steikin fari í ofninn. Ætla mér á sunnudaginn að fara í piparkökuhúsabakstur ásamt dóttur og öðrum. Ætla mér að reyna að láta þetta líta einhvernveginn svona út.
Jáh maður margra hæfileika, en veit ekki hversu mikið piparkökuhúsabakstur fellur í þann flokk, þeas hæfileikaflokk.
þarf að koma músík gagnrýnidálkinum í gagnið aftur, og jafnvel bæta við nokkrum dálkum. Eða hvað?
Kv úr koti káta fólksins. F|ZzY
|